Gengið á Fimmvörðuháls með húmor:)

hérna er partur 1 af myndbandi í fyrstu persónu hvernig er að ganga upp...

hérna er partur 2 af sama myndbandi...

 


Hversu einfalt er að búa til pólitískt ádeilu myndband?

mbl.jpg

Ég var orðinn dálítið þreyttur á íslensku pólitísku tuði svo ég skellti mér í að klippa saman efni sem ég hef tekið upp síðustu ár, m.a frá Sýrlandi, Líbanon, Tyrklandi, Jórdaníu, Bandaríkjunum og Íslandi.

Þetta er wild klippt, sem ég fíla allavega.

http://www.blip.tv/file/2562520

 

 


Blogg mitt fyrir kosningar sagði þetta um Borgó:

Það er lítið meira óspennandi en að segja einhverjum hvað muni gerast, og það er ennþá verra að segja nokkrum mánuðum síðum "I told you so" en það versta við þetta allt er hversu auðlesanleg stjórnmál eru. Ég sagði eitthvað á bloggi mínu fyrir nokkrum mánuðum og það er sorglegt að sjá það rætast. Því ég var að vona að Borgarahreyfingin yrði eitthvað sem myndi snúa pólítíkinni við.

 Ég sagði semsagt fyrir síðustu kosningar með sögulegri og fræðilegri stjórnmálaskýringu:

"Borgarahreyfingin er samansafn fólks, allir aðrir flokkar eru samansafn fólks og fólk þarf að geta fundið áherslur sínar meðal flokkanna. Hvernig ætlar borgarahreyfingin að bregðast við þeim málum sem munu koma upp á næsta þingi? Það veit enginn því Borgarahreyfingin hefur enga stefnu í neinum málefnum nema óúthugsaðar pælingar varðandi það að almenningur eigi að fá að ráða.

Þeir sem kjósa Borgarahreyfinguna vita ekkert hvað þeir eru að kjósa yfir sig, að kjósa aðra alvöru flokka með alvöru stefnu er að kjósa rétt og ef sá flokkur bregst strefnu sinni þá geturðu kosið nýjan flokk í næstu kosningum. Það er lýðræði! Hættum að ljúga að okkur sjálfum og tökum afstöðu!"

og því miður hafði ég rétt fyrir mér.
 


mbl.is Margrét kalli til varamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin = útrásarvíkingar 2009

Ég hef átt í miklum vanda með að mynda mér skoðun á Icesave málinu.

það eina sem ég virðist samt sjá örugglega úr þessu máli er að það er verið að veðja á markaðinn...

Veðja á markaðinn nákvæmlega eins og íslenskir viðskiptamenn gerðu út um allan heim á síðustu árum.

Þessum veðmálum töpuðu þeir... og nú er íslenska ríkisstjórnin að fremja nákvæmlega sama gjörning... þ.e veðja á markaðinn...

Hvað ef markaðurinn hrynur aftur... sem getur klárlega gerst?

En það voru þá ekki business menn sem veðjuðu rangt, heldur íslensk stjórnvöld.

Hvað gerist ef við töpum þessu veðmáli? erum við fokked?


Ég er að rækta kannabis og hægt er að sjá það hér á webcam

http://www.ustream.tv/channel/stofur%C3%A6kt

Er bara að reyna að gera mér góðan dag og vá hvað það er gaman að koma heim á kvöldin og velta því fyrir sér hvort kryddjurtirnar séu búnar að breytast úr fræjum í grös sem síðan verða bragðmikil bæting við góða ítalska, arabíska og íslenska rétti.... skellti þessu á lifandi myndbandssýningu fyrir þá sem vilja, þetta er þolinmæðisverk:)

ekkert dóp samt:)

hægt er að sjá kryddjurtirnar mínar vaxa hérna í glugganum:) (þetta er í skipholti 50 F ef þú vilt kíkja í heimsókn með netlögguna Steingrímur:) )

http://www.ustream.tv/channel/stofur%C3%A6kt


Lilja Mósesdóttir ???

Ég er nú ekki mikið fyrir að uppnefna fólk en mér datt samt eitt í hug sem kannski á við, en kannski ekki... Er Lilja Mósesdóttir dóttir Móses? hún virðist allavega ekki alveg fara eftir boðorðunum 10... er annars ekki hægt að túlka "þú skalt ekki girnast maka nágranna þíns" sem " þú skalt ekki breytast í skoðanalausan þingmann þó þú farir á þing" ... bara pæling

Ný myndbönd á youtube með þingmönnum og borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins

Hér eru nokkur ný myndbönd, en hægt er að sjá fleiri myndbönd á http://www.youtube.com/sjalfstaedisflokkur eða á http://www.xd.is/

 

 


Hærra bjórverð = hærri afborganir

Ég hélt að þessi ríkisstjórn ætlaði að gera allt einhvernvegin öðruvísi, en greinilega ekki... Ég er alveg til í að borga meira fyrir bjórinn minn, en mér finnst það fáránlegt að það að hækka verð á bjór hækki húsnæðislán þeirra sem drekka ekki... Hvar er þessi bylting á stjórnun sem átti að koma með þessarri nýju "frábæru" ríkisstjórn? Ef það eiga ekki að verða breytingar þá vil ég fá aftur þá sem kunna allavega á stjórnkerfið...

Nýjar kosningar strax! XD + XB = Malt og Appelsín


Gunnar Birgisson og allar spillingarsögurnar

Er svona mikil spilling í gangi á Íslandi? Það hefur nú verið rætt um þessa svokölluðu spillingu í kringum Gunnar Birgisson í marga áratugi... Er fólk að semsagt að segja að allir aðilar sem komið hafi að þessum málum síðustu áratugina, þ.e verkfræðingar, stjórnsýslufræðingar, bæjarfulltrúar, endurskoðendur og svo framvegis, hafi verið að fela þetta. Er verið að segja að alllir þeir aðilar sem eiga að rannsaka svona hluti, svo sem lögreglan og fleiri hafi viljandi ekki rannsakað þetta? Er ekki til eitt sönnunargagn sem segir svart á hvítu að eitthvað rangt hafi átt sér stað? Auðvitað á bæjarstjóri ekki að eiga fyrirtæki sem stundar viðskipti sem hann er bæjarstjóri í, en það er eingöngu vegna þess að það á ekki að leyfa svona sögum að grasserar og birtast, því það er  auðvelt að búa til sögur. Það eru helstu mistök Gunnars, mjög alvarleg, mjög mjög alvarleg mistök.

Hvaða rugl er í gangi?

Engar lausnir - ESB á að leysa öll vandamál og "ríkisstjórnin mun ekki auka tekjur ríkisstjórn í gegnum skatta meira en var gert á á árunum 2005-2007." Þetta er barnaskapur og gersamlega verið að gera Íslendinga að fíflum... erum við svona vitlaus í alvörunni. Bankarnir skiluðu margra tuga eða hundruða milljarða sköttum í ríkissjóð á þessum árum og einkaneyslan var úr öllu hófi, sem skilaði sér í sjúklegum óbeinum sköttum í ríkissjóð. Þessir skattar eru ekki að skila sér núna heilög jóhanna... held það sé kominn tími til að byrja að gagnrýna hana aðeins og fella niður þennan varnarmúr sem hefur verið í kringum hana... hún er ekki móðir Teresa. 
mbl.is Skattar svipaðir og 2005-2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband